Meirihlutinn fallinn í Reykjavík

Samkvæmt nýjustu tölum er meirihlutinn fallinn í Reykjavík. Framsóknarflokkurinn og flugvallarvinir ná inn tveimur mönnum og Sjálfstæðisflokkur fimm.

Þegar talin hafa verið 47% atkvæða er Framsókn með 14% atkvæða og tvo menn, Sjálfstæðisflokkur með 29,8% og fimm menn. Flokkurinn er því með fleiri atkvæði en Samfylkingin sem er með 27,6% atkvæða en jafnmarga menn og Sjálfstæðisflokkurinn.

Björt framtíð er með 14,3% atkvæða og tvo menn.

Vinstri græn eru með 7,2% atkvæða og einn mann.

Sveinbjörgu B. Sveinbjörnsdóttur, oddvita Framsóknar og flugvallarvina var vel fagnað …
Sveinbjörgu B. Sveinbjörnsdóttur, oddvita Framsóknar og flugvallarvina var vel fagnað er hún mætti á kosningavöku flokksins í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Fagnaðarlæti í Valhöll er nýjustu tölur frá Reykjavík voru birtar. …
Fagnaðarlæti í Valhöll er nýjustu tölur frá Reykjavík voru birtar. Þar eru Sjálfstæðismenn saman komnir. mbl.is/Styrmir Kári
Fagnaðarlæti á kosningavöku Framsóknar eru nýjustu tölur voru lesnar.
Fagnaðarlæti á kosningavöku Framsóknar eru nýjustu tölur voru lesnar. mbl.is/Eggert
Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna á kosningavöku flokksins í Reykjavík.
Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna á kosningavöku flokksins í Reykjavík. mbl.is/Styrmir Kári
Árni Páll Árnason og Dagur B. Eggertsson féllust í faðma …
Árni Páll Árnason og Dagur B. Eggertsson féllust í faðma á kosningavöku Samfylkingar í Stúdentakjallaranum. mbl.is/Ómar Óskarsson
Hildur Sverrisdóttir, fyrir miðju, fagnar í Valhöll.
Hildur Sverrisdóttir, fyrir miðju, fagnar í Valhöll. mbl.is/Styrmir Kári
Björn Blöndal á kosningavöku Bjartrar framtíðar á Hótel Borg.
Björn Blöndal á kosningavöku Bjartrar framtíðar á Hótel Borg. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert