„Sýnist að þetta muni ganga“

Reykjanesbær.
Reykjanesbær. mbl.is

„Þetta er komið langt á veg,“ segir Gunnar Þórarinsson, oddviti Frjáls afls í Reykjanesbæ, en framboðið hefur verið í viðræðum við Samfylkinguna og Beina leið um myndun meirihluta í bæjarstjórn. 

„Mér sýnist að þetta muni ganga en það er auðvitað ekkert klárt fyrr en það er klárt,“ segir hann. Verði gengið frá samstarfi framboðanna verði það eftir helgi. Aðspurður segist hann ekki eiga von á að fundað verði um málið í dag en stefnt sé að áframhaldandi fundarhöldum á mánudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert