Langtímastefna um framtíð bæjarins

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Bjartrar framtíðar hafa gert með sér sáttmála um myndum meirihluta bæjarstjórnar, sem ber yfirskriftina Hafnarfjörður – horfir á móti sól. Hann var lagður fram á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fyrr í dag. Á fundinum var einnig kosið í ráð og nefndir á vegum bæjarins.

Guðlaug Kristjánsdóttir frá Bjartri framtíð var kosin forseti bæjarstjórnar og  Rósa Guðbjartsdóttir, Sjálfstæðisflokki, formaður bæjarráðs.

Í sáttmálanum kemur fram að áhersla sé lögð á ábyrga langtímahugsun í stefnumótun og  stjórn bæjarins. Skýr markmið og sátt um framtíðarsýn sé grunnar að farsælu verki. Því verði á kjörtímabilinu unnið að gerð langtímastefnu um framtíð bæjarins og leitað eftir frumkvæði og þátttöku bæjarbúa og samstöðu innan bæjarstjórnar.

Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs, segir í tilkynningu spennandi tíma framundan í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar og það sé tilhlökkun í hópnum að takast á við þau verkefni sem framundan eru. „Við munum leggja okkur fram við að eiga jákvætt og uppbyggilegt samstarf við alla bæjarfulltrúa og um leið að efla samtal bæjarstjórnar við bæjarbúa.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert