Eyþór kjörinn forseti bæjarstjórnar

Eyþór H. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar.
Eyþór H. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar.

Eyþór H. Ólafsson var kjörinn forseti bæjarstjórnar á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar sem haldinn var í gær. Varaforseti var kjörin Ninna Sif Svavarsdóttir en Unnur Þormóðsdóttir var kosin formaður bæjarráðs. 

Á fundinum var einnig samþykkt að ganga til samninga við Aldísi Hafsteinsdóttur um starf bæjarstjóra.

D-listi Sjálfstæðismanna hlaut hreinan meirihluta eða 58,5% atkvæða í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, að því er segir í tilkynningu.

Þrír nýir bæjarfulltrúar taka nú til starfa í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar, Njörður Sigurðsson og Viktoría Sif Kristinsdóttir af S-lista og Garðar R. Árnason af B-lista.

Skipað var í nefndir og ráð og eftirtaldir eru formenn helstu nefnda:

Formaður fræðslunefndar er Þórhallur Einisson.

Formaður skipulags- og mannvirkjanefndar er Eyþór H. Ólafsson.

Formaður umhverfisnefndar er Unnur Þormóðsdóttir.

Formaður menningar, íþrótta- og frístundanefndar er Ninna Sif Svavarsdóttir .

Formaður kjörstjórnar er Inga Lóa Hannesdóttir.

Unnur Þormóðsdóttir var kosin formaður bæjarráðs.
Unnur Þormóðsdóttir var kosin formaður bæjarráðs.
Samþykkt var að ganga til samninga við Aldísi Hafsteinsdóttur um …
Samþykkt var að ganga til samninga við Aldísi Hafsteinsdóttur um starf bæjarstjóra.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert