Jóhannes Haukur oddviti í Dalabyggð

Merki Dalabyggðar.
Merki Dalabyggðar. www.samband.is

Á fyrsta fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar Dalabyggðar þann 19. júní var Jóhannes Haukur Hauksson kosinn oddviti sveitarstjórnar til eins árs og Halla Sigríður Steinólfsdóttir varaoddviti.

Eyþór Jón Gíslason, Ingveldur Guðmundsdóttir og Þorkell Cýrusson voru kosin í byggðarráð til eins árs og Halla Sigríður Steinólfsdóttir, Sigurður Bjarni Gilbertsson og Valdís Gunnarsdóttir til vara. Ingveldur var kosin formaður og Eyþór Jón varaformaður, segir í fréttatilkynningu.

Þá samþykkti sveitarstjórn að ganga til samninga við Svein Pálsson um endurráðningu í starf sveitarstjóra.

Á fundinum var einnig kosið í nefndir, stjórnir og samstarfsnefndir í samræmi við samþykkt um stjórn Dalabyggðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert