Ráðinn sveitarstjóri Grýtubakkahrepps

Grenivík og Kaldbakur í bakgrunn
Grenivík og Kaldbakur í bakgrunn Ingólfur Guðmundsson

Þröstur Friðfinnsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Grýtubakkahrepps frá 1. ágúst nk.

Þröstur er Þingeyingur uppalinn á Húsavík. Hann hefur nýverið látið af störfum sem framkvæmdastjóri hjá Dögun ehf., rækjuvinnslu og útgerð á Sauðárkróki, eftir 10 ára starf, þar áður var hann útibússtjóri Landsbanka Íslands í 15 ár, fyrst á Kópaskeri og síðan á Sauðárkróki.

Á vef Grýtubakkahrepps segir Þröstur að það sé honum mikill heiður en jafnframt áskorun að setjast í stól Guðnýjar Sverrisdóttur, sem hafi skilað svo frábæru verki að eftir var tekið. „Þá líst mér sérlega vel á að vinna með sveitarstjórninni, þar sýnist mér vera mjög hæft og áhugasamt fólk sem segir nokkuð um íbúana almennt. Við hlökkum til að koma á staðinn og kynnast þeim öllum.“

Eiginkona Þrastar er Elín Sigurðardóttir og með þeim flytur Friðfinnur, 12 ára sonur þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert