Bjóða til forsetaspjalls

Fundurinn fer fram í Háskóla Íslands.
Fundurinn fer fram í Háskóla Íslands.

JCI (Junior Chamber International) á Íslandi í samvinnu við LÆF (Landssamband Æskulýðsfélaga) bjóða forsetaframbjóðendum að spjalla við unga kjósendur á viðburði sem ber yfirskriftina „Okkur er ekki sama“.

„Markmið viðburðarins er að vekja áhuga meðal ungs fólks og hvetja það til þátttöku í forsetakosningunum, vera vettvangur fyrir ungt fólk til að kynna sjónarsmið sín fyrir frambjóðendum og fyrir forsetaframbjóðendur að kynna stefnumál sín fyrir ungum kjósendum,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Af þeim þrettán  sem tilkynnt hafa um framboð hafa sjö tilkynnt um þátttöku sína: Ari Jósepsson, Ástþór Magnússon, Bæring Ólafsson, Elísabet Jökulsdóttir, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Hildur Þórðardóttir, Hrannar Pétursson. Þá kemur fram í að frambjóðendurnir Halla Tómasdóttir og Heimir Örn Hólmarsson hafi sýnt verkefninu mikinn áhuga.

Fundurinn er opinn almenningi og fer fram næstkomandi fimmtudag, 7. apríl frá kl. 17-19 í stofu HT-102 í Háskóla Íslands. 

Dagskrá viðburðarins má sjá hér að neðan.

17.00 - Fólk kemur sér fyrir og boðið velkomið. 

17.05 - Forseti JCI Íslands opnar viðburðin. Formaður LÆF segir nokkur orð. 

17.10 - Varaheimsforseti JCI hreyfingarinnar kynnir sig og heldur erindi um hvernig ungt fólk hefur áhrif á samfélagið . 

17.30 - Stjórnmálafræðingur fjallar um kosningahegðun ungs fólks. 

17.40 - Gunnar Þór, verkefnastjóri viðburðarins, segir nokkur orð. 

17.45 - Forsetaframbjóðendur koma á svið. Hver frambjóðandi fær 2 mínútur til að kynna sig, segja frá sínum helstu baráttumálum og hvernig þau höfða til ungs fólks. Eftir framsögu allra frambjóðenda verða myndaðir umræðuhópar þar sem frambjóðendur og þátttakendur geta rætt saman um kosningarnar og þau helstu málefni sem snúa að ungu fólki. 

Reiknað er með 30-40 mínútum í umræður en að þeim loknum munu allir frambjóðendur verða kallaðir uppá svið aftur þeim gefinn kostur á að segja mjög stuttlega (60 sek) frá því hvernig þeim fannst viðburðurinn, áheyrendur og hvort þeir drógu einhvern lærdóm af honum sem þeir taka með sér í farteskið.

Ennfremur verður skoðannakönnun á fylgi frambjóðenda framkvæmt á staðnum meðan á fundinum stendur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert