Ólafur með 52,6% fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, tilkynnti um framboð sitt í sjötta sinn …
Ólafur Ragnar Grímsson, tilkynnti um framboð sitt í sjötta sinn til forseta Íslands. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Dagana 22. til 26. apríl kannaði MMR fylgi þeirra einstaklinga sem höfðu tilkynnt forsetaframboð. Niðurstöður leiddu í ljós að sitjandi forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, hafði nokkuð forskot með 52,6% fylgi, en Andri Snær Magnason með 29,4% fylgi var sá sem næst komst Ólafi. Halla Tómasdóttir mældist með 8,8% fylgi, en fylgi annarra frambjóðenda mældist undir 2%.

Þegar fylgi þriggja efstu frambjóðendanna er skoðað eftir samfélagshópum kemur í ljós að Ólafur Ragnar Grímsson hefur hlutfallslega meira fylgi á landsbyggðinni, á meðan Andri Snær Magnason hefur hlutfallslega hærra fylgi á höfuðborgarsvæðinu. Fylgi Höllu Tómasdóttur mældist einnig meira á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni.

Eins hefur Ólafur Ragnar Grímsson hlutfallslega meira fylgi meðal þeirra sem hafa minni menntun og lægri tekjur, en Andri Snær Magnason hefur hlutfallslega meira fylgi meðal þeirra sem eru tekjuhærri og með aukna menntun, en fólk í sérfræðistörum er líklegast til að vera fylgjendur Andra Snæs Magnasonar. Halla Tómasdóttir hefur einnig töluvert meira fylgi meðal kvenna auk þess sem stjórnendur og æðstu embættismenn eru hlutfallslega líklegri til að vera fylgjendur Höllu í samanburði við fólk í annars konar störfum.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 953 einstaklingar - 79% nefndu frambjóðanda
Dagsetning framkvæmdar: 22. til 26. apríl 2016

Skjáskot/MMR
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert