Guðni Th. talar um þorskastríðin

Guðni Th. Jóhannesson heldur fyrirlestur um þorskastríðin.
Guðni Th. Jóhannesson heldur fyrirlestur um þorskastríðin. mbl.is/Golli

Guðni Th. Jóhannesson, forsetaframbjóðandi og dósent í sagnfræði við Háskóla Íslands, heldur fyrirlestur um þorskastríðin á málþingi í HÍ í hádeginu.

Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Er þorskastríðunum lokið? Valdar minningar um liðin átök“.

Málþingið fjallar um landhelgismál og þorskastríð í tilefni þess að rétt 40 ár eru liðin síðan lokasigur vannst í baráttu Íslendinga fyrir útfærslu fiskveiðilögsögunnar.

Þar flytur dr. Colin Davis, prófessor í sagnfræði við háskólann í Alabama í Bandaríkjunum, einnig erindi, ásamt Flosa Þorgeirssyni, meistaranema í sagnfræði við Háskóla Íslands.

Málþingið stendur yfir frá klukkan 12 til 14 í Öskju.

Því verður streymt beint í gegnum Facebook Live á Facebook-síðu framboðs Guðna. 

Guðni hefur undanfarið verið spurður út í ummæli sem hann lét falla í tengslum við þorskastríðin í fyrirlestri sem hann hélt árið 2013. Hefur hann sagt að orð sín um „fávísan lýð“ hafi verið tekin úr samhengi og að um myndlíkingu hafi verið að ræða. 

Frétt mbl.is: Túlki ummælin ekki bókstaflega 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert