Guðni enn með forystu í Reykjavík norður

Staðan í Reykjavíkurkjördæmi norður kl. 23.40.
Staðan í Reykjavíkurkjördæmi norður kl. 23.40.

Samkvæmt öðrum tölum sem hafa verið lesnar upp í Reykjavíkurkjördæmi norður leiðir Guðni Th. Jóhannesson með 4.542 atkvæðum. Halla Tómasdóttir er næst með 3.161 atkvæði. Þar hafa verið talin 13.282 atkvæði.

Andri Snær Magnason er þriðji með 3.059 atkvæði, Davíð Oddsson er með 1.672, Sturla Jónsson 441, Elísabet Jökulsdóttir 164, Guðrún Margrét Pálsdóttir 38 og Hildur Þórðardóttir 22.

Auðir seðlar voru 130 og ógildir 24.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert