Guðni með forskot í Reykjavík suður

Staðan samkvæmt fyrstu tölum úr Reykjavíkurkjördæmi suður sem birtar voru …
Staðan samkvæmt fyrstu tölum úr Reykjavíkurkjördæmi suður sem birtar voru rúmlega 23.30 í kvöld.

Fyrstu tölur hafa verið lesnar upp í Reykjavíkurkjördæmi suður en alls hafa verið talin 12.691 atkvæði. Guðni Th. Jóhannesson leiðir með 4.248 atkvæði. Halla Tómasdóttir fékk 3.279 atkvæði.

Andri Snær Magnason er með 2.448 atkvæði, Davíð Oddsson með 1.839, Sturla Jónsson 503, Elísabet Jökulsdóttir 126, Ástþór Magnússon 43 atkvæði, Guðrún Margrét Pálsdóttir 32 og Hildur Þórðardóttir 21.

Auðir seðlar eru 152.

Halla Tómasdóttir og Guðni Th. Jóhannesson fylgjast með fyrstu tölum …
Halla Tómasdóttir og Guðni Th. Jóhannesson fylgjast með fyrstu tölum í beinni útsendingu á RÚV. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert