Guðni með forystu í NA-kjördæmi

Fyrstu tölur í Norðausturkjördæmi klukkan 22:40.
Fyrstu tölur í Norðausturkjördæmi klukkan 22:40.

Fyrstu tölur hafa verið lesnar upp í Norðausturkjördæmi, en alls hafa verið talin 4.000 atkvæði. Guðni Th. Jóhannesson leiðir með 1.709 atkvæði. Halla Tómasdóttir kemur næst á eftir með 1.346 atkvæði. Guðni er því með 42,73% atkvæða og Halla 33,65%.

Andri Snær Magnason fékk 378 atkvæði, Davíð Oddsson 369, Sturla Jónsson 115, Elísabet Jökulsdóttir 12, Ástþór Magnússon 11, Hildur Þórðardóttir 4, Guðrún Margrét Pálsdóttir 3.

Auðir seðlar voru 49 og ógildir 4.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert