Guðni og Halla leiða

Frambjóðendur í beinni útsendingu í RÚV eftir að fyrstu tölur …
Frambjóðendur í beinni útsendingu í RÚV eftir að fyrstu tölur voru lesnar upp. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi voru lesnar upp nú um 22:15. Guðni Th. Jóhannesson leiðir með 2.273 atkvæði. Næst á eftir kemur Halla Tómasdóttir með 2.181 atkvæði. Guðni er því með 36,22% atkvæða enn sem komið er og Halla 34,76%.

Davíð Oddsson er með 882 atkvæði, Andri Snær Magnason er með 430 atkvæði, Sturla Jónsson með 378 atkvæði, Elísabet Jökulsdóttir með 34 atkvæði, Ástþór Magnússon með 21 atkvæði, Guðrún Margrét Pálsdóttir með 20 atkvæði og Hildur Þórðardóttir með 10.

Auðir og ógildir seðlar eru 46. 

Þar hafa verið talin yfir 6.200 atkvæði eða 18%.

Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi kl. 22.15.
Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi kl. 22.15.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert