Forsetakosningar eru í dag og landsmenn hafa að sjálfsögðu tjáð sig um þær á samfélagsmiðlinum Twitter. Þar kennir ýmissa grasa eins og sjá má hér fyrir neðan. Einn kjósandi veltir til að mynda fyrir sér hversu lengi megi vera í kjörklefanum vegna valkvíða og annar kvartar yfir hönnuninni á kjörseðlinum. Svo er það stúlkan sem þykir fúlt að hafa ekki kosningarétt þegar fullt af fólki nýtir ekki kosningarétt sinn.
Upphalds fólkið mitt eru þau sem bjóða góðan daginn í göngutúrum og þau sem klæða sig upp fyrir kosningar 😍#forseti
— Anna Fríða (@AnnaFridaGisla) June 25, 2016
Mitt ✖️ er komið á góðan stað þrátt fyrir örlítinn valkvíða. #forseti #kjósum
— Hallbera Gisladottir (@HallberaGisla) June 25, 2016
Mæðgur á kjörstað. 👶fékk frjálsar hendur í vali á sparifötum. Fátt sparilegra en Mjallhvít. #mömmutwitter #forseti pic.twitter.com/cpK8WmRdtQ
— Drífa Pálín Geirs (@DrifaP) June 25, 2016
Er hámarkstími á dvöl í kjörklefanum? Á við smá valkvíða að etja. #forseti
— Erna Kristín (@ernakrkr) June 25, 2016
Ég hef hlegið að myndum af frambjóðendum á svona stundu. En það er allt óþægilegt við þessa stellingu. #forseti pic.twitter.com/qtoTGjQWmA
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) June 25, 2016
Kjósið krakkar! Notið ykkar "rétta" atkvæði til að núlla annarra "ranga" atkvæði. Þið skiptið máli! #forseti
— Þóra Björk Ólafsdótt (@ThoraBjorkO) June 25, 2016
Búinn að kjósa. Hvaða idjót hannaði kjörseðilinn? Verður að krossa á tiltekinn stað en samt enginn reitur? #forseti
— Sigfús Örn (@sigfusorn) June 25, 2016
Að gefnu tilefni minni ég á followera mína að kjósa skv. eigin sannfæringu, en ekki vegna þess að fólk á twitter bað ykkur um það.#forseti
— Starkaður Pétursson (@StarkadurPet) June 25, 2016
Óvænt að öskrið hans Gumma Ben sé komið á kjörseðilinn á síðustu stundu. En það hefur borið hróður okkar víða og fær mitt atkvæði. #forseti
— Dagur Hjartarson (@DagurHjartarson) June 25, 2016
Ótrúlega fúl yfir því að fá ekki að kjósa því ég er of ung og svo er fullt af fólki sem nýtur ekki kosningarétt sinn?? #forseti
— Margrét Torfadóttir (@Margrettorfa) June 25, 2016