Guðni enn fremstur í Reykjavík norður

Staðan í Reykjavíkurkjördæmi norður kl. 00.22.
Staðan í Reykjavíkurkjördæmi norður kl. 00.22.

Þriðju tölur hafa verið lesnar upp í Reykjavíkurkjördæmi norður, en búið er að telja 20.555 atkvæði. Guðni Th. Jóhannesson leiðir með 7.001 atkvæði. Næstur kemur Andri Snær Magnason með 4.443 atkvæði og þá Halla Tómasdóttir með 4.768 atkvæði.

Ástþór Magnússon hlaut 55 atkvæði, Davíð Oddsson 2.553 atkvæði, Elísabet Jökulsdóttir 263, Guðrún Margrét Pálsdóttir 48, Hildur Þórðardóttir 37 atkvæði og Sturla Jónsson með 664.

Auðir seðlar eru 215 og aðrir ógildir 108.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert