Þegar 34.650 atkvæði höfðu verið talin í forsetakosningunum í Suðvesturkjördæmi var Guðni Th. Jóhannesson með 12.500 atkvæði eða 36% og Halla Tómasdóttir með 11.300 atkvæði eða 32,6% fylgi.
Samkvæmt þessum tölum eru Andri Snær Magnason og Davíð Oddsson hnífjafnir með 4.500 atkvæði eða tæp 13% atkvæða.
Auðir og ógildir seðlar eru 500 sem nemur 1,44%.