„Happy Birthday Mr. President“

Guðni Th. Jóhannesson smellti kossi á eiginkonu sína, Elizu Reid, …
Guðni Th. Jóhannesson smellti kossi á eiginkonu sína, Elizu Reid, en hann fagnar nú 48 ára afmæli. mbl.is/Eggert

Guðni Th. Jóhannesson fagnar 48 ára afmæli sínu í dag, 26. júní. Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Hansa, söng af því tilefni Happy Birthday Mr. President fyrir Guðna Th. líkt og Marilyn Monroe söng fyrir John F. Kennedy árið 1962. Guðni Th. stóð uppi á sviði á Grand hóteli þar sem kosningavaka stuðningsmanna hans fer fram.

Uppátækið vakti mikla kátínu meðal gesta en skömmu áður hafði Guðni Th. lýst yfir sigri í kosningunum í sigurræðunni í kosningavökunni. 

Afmælissöngurinn var sunginn fyrir Guðna.
Afmælissöngurinn var sunginn fyrir Guðna. mbl.is/Eggert

Í framhaldinu tóku stuðningsmenn afmælissönginn fyrir afmælisbarnið áður en Raggi Bjarna steig upp á svið og tók lög fyrir stuðningsmennina.

Mikil stemmning er í salnum, stuðningsmenn Guðna Th., sem mbl.is hefur náð tali af, segjast hafa átt von á að hann fengi betri kosningu en segjast aldrei hafa velkst í vafa um að Guðni Th. yrði sigurvegari kosninganna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert