Vigdís gefur ekki kost á sér

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar, sækist ekki eftir oddvitasæti flokksins í Reykjavík í kosningum til Alþingis í haust. Þá lætur hún einnig af þingmennsku í haust. 

Hér má sjá yfirlýsingu Vigdísar í heild sinni: 

Í samráði við mína nánustu hef ég ákveðið að sækjast ekki eftir oddvitasæti Framsóknarflokksins í Reykjavík og læt ég þar með af þingmennsku fyrir flokkinn eftir næstu alþingiskosningar. Hætta skal hverjum leik þá hæst hann stendur – ég er stolt af verkum mínum á Alþingi – þar sem ég hef lagt allt undir fyrir land og þjóð.  Má þar nefna Icesave og baráttuna gegn ESB umsókninni, aðförina að stjórnarskránni, baráttuna við kröfuhafana sem leiddu loks til skuldaniðurfellingar fyrir heimilin í landinu svo eitthvað sé nefnt. 

Nú er framtíðin björt fyrir land og þjóð – það var ekki svo þegar ég hóf störf sem þingmaður. Á árabilinu 2009 – 2013 var þjóðinni sundrað með sífelldum átakamálum í stað samheldni. Síðasta stóra verkefnið mitt áður en ég læt af þingmennsku er að leiða fram staðreyndir um afhendingu tveggja stóru bankanna til kröfuhafanna og upplýsa um vinnubrögð kringum Landsbankann og Icesave. Öll gögn liggja nú fyrir og verður upplýst um þessi mál í sumarlok.

Lífið hefur alltaf verið mér gott og fært mér nýjar og spennandi áskoranir, tækifæri og úrlausnarefni þegar ég hef ákveðið breyta um vettvang og trúi ég að svo verði einnig nú.

Ég þakka framsóknarmönnum í Reykjavík og kjósendum mínum í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir stuðninginn. Einnig þakka ég mikinn og áþreifanlegan stuðning í starfi mínu frá fólki hvaðanæva af landinu og Íslendingum búsettum erlendis langt, langt út fyrir flokksraðir. Sá stuðningur er ómetanlegur og hefur drifið mig áfram í baráttunni fyrir land og þjóð.

Megi Ísland verða frjálst, sjálfstætt og fullvalda ríki um ókomin ár

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert