Helga gefur kost á sér

Helga Ingólfsdóttir.
Helga Ingólfsdóttir. Ljósmynd/Helga Ingólfsdóttir

Helga Ingólfsdóttir, bókari og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi vegna komandi þingkosninga. Fram kemur í fréttatilkynningu að hún stefni á 2. til 4. sæti framboðslistans.

„Ég tel að reynsla mín af sveitarstjórnarmálum geti nýst vel á Alþingi. Undanfarin 6 ár hef ég verið bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og hef í störfum mínum öðlast víðtæka þekkingu á fjölmörgum málaflokkum sem snúa að hagsmunum íbúa og umhverfis,“ segir Helga í fréttatilkynningunni en hún er formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar og varaformaður í fjölskylduráði bæjarfélagsins auk setu í ýmsum starfshópum og nefndum.

Helga hefur einnig gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn um árabil. Hún hefur meðal annars verið formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði og varaformaður kjördæmisráðs flokksins í Suðuvesturkjördæmi. Þá hefur hún síðustu þrú ár verið stjórnarmaður í VR og formaður jafnréttisnefndar stéttarfélagsins.

„Mínar helstu áherslur eru jöfnuður og réttlæti. Ég vil beita mér fyrir því að lífskjör á Íslandi verði betri með aukinni framleiðni, styttri vinnutíma, og hærri meðallaunum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert