Hafdís sækist eftir 3. sæti

Hafdís Gunnarsdóttir.
Hafdís Gunnarsdóttir.

Hafdís Gunnarsdóttir gefur kost á sér í 3. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Prófkjörið fer fram 3. september.

„Ástæðan fyrir því að ég býð mig fram er að ég sé ótal tækifæri til að efla svæðin í þessu víðfeðma kjördæmi og vil með þessum hætti ganga beint til verka,“ er haft eftir Hafdísi í fréttatilkynningu.

Hafdís tók nýverið við starfi forstöðumanns liðveislu hjá Ísafjarðarbæ, en hefur síðastliðin þrjú ár gegnt starfi ráðgjafa hjá barnavernd á norðanverðum Vestfjörðum. Þar áður vann hún sem kennari. 

Hafdís hefur verið félagi í Sjálfstæðisflokknum í Ísafjarðarbæ í mörg ár og gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Hún er formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ og varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar Sjálfstæðisflokksins.

Hún er 36 ára gömul, gift Shiran Þórissyni fjármálastjóra og eiga þau tvo syni. Hún er fædd og uppalin á Ísafirði en bjó í Reykjavík á árunum 2000–2004 á meðan hún nam iðnrekstrarfræði við Tækniháskóla Íslands. Að því loknu flutti hún aftur til Ísafjarðar og lagði stund á fjarnám frá Háskólanum á Akureyri. Þaðan útskrifaðist hún árið 2008 með B.Ed. í grunnskólakennarafræði.

„Mér finnst það vera forréttindi að búa með fjölskylduna mína úti á landi og er tilbúin til að vinna fyrir kjördæmið mitt,“ segir Hafdís í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert