Páll Magnússon vill leiða listann

Páll Magnússon.
Páll Magnússon. mbl.is/Rax / Ragnar Axelsson

Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og stefnir hann á 1. sæti listans. Þetta staðfestir hann í samtali við mbl.is en framboðsfrestur rennur út á miðnætti í kvöld.

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í haust. Ég býð mig fram í 1. sæti til þess að leiða listann í kosningunum. Ef sjálfstæðismenn í kjördæminu ætla mér hins vegar eitthvert annað sæti á listanum þá er ég fús til þess að taka því. En ég býð mig fram í fyrsta sætið,“ segir Páll.

Páll var útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins 2005–2014 og á að baki langan starfsferil í fjölmiðlum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert