Brynjar gefur áfram kost á sér

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson. mbl.is/Eggert

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að gefa kost á sér til áframhaldandi setu á Alþingi í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík sem fram fer 3. september. Frestur til þess að bjóða sig fram rennur út klukkan 16 á morgun.

Brynjar var fyrst kjörinn á þing 2013 og hefur setið þar sem þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður. Spurður hvaða sæti hann stefnir á segir Brynjar að það sé ekki endanlega ákveðið. „En það verður allavega örugglega ofarlega.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert