Ísak Ernir sækist eftir fjórða sætinu

Ísak Ernir Kristinsson
Ísak Ernir Kristinsson

Ísak Ernir Kristinsson, 23 ára verkefnastjóri og nemi í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer laugardaginn 10. september. Hann sækist eftir fjórða sæti listans.

Í framboðstilkynningu segist Ísak Ernir hafa verið virkur í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins frá 16 ára aldri og gegnt hinum ýmsum störfum fyrir flokkinn, meðal annars verið formaður Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ, og formaður Sjálfstæðisfélags Keflavíkur.

Ísak Ernir er varaformaður fulltrúaráðs SSF í Reykjanesbæ og situr einnig í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna. Auk þess er hann varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og situr í velferðarnefnd bæjarins fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.

„Kynslóðin sem ég tilheyri, sem er yngsta kynslóðin á vinnumarkaði, hefur á margan hátt aðra sýn og þarfir en fyrri kynslóðir. Það er mikilvægt að löggjafarþingið taki mið af þeirra þörfum, sérstaklega þegar kemur að menntamálum, velferðarmálum og húsnæðismálum. Það er mikilvægt að þessi kynslóð eigi sér málsvara á Alþingi. Ég vil vera þeirra fulltrúi.

Einnig er mikilvægt að ráðist verði í auknar úrbætur á samgöngukerfinu. Þar hefur fjárfestingaþörfin safnast upp í mörg ár.

Að mínu mati er sjálfstæðisstefnan best til þess fallin að auka vegsæld og aukin tækifæri fyrir ungt fólk,“ segir hann í framboðstilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert