Óli Björn gefur kost á sér í 3. sæti

Óli Björn Kárason.
Óli Björn Kárason.

Óli Björn Kárason, ritstjóri og útgefandi Þjóðmála og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi sem fram fer 10. september. Hann sækist eftir þriðja sæti.

Óli Björn er hagfræðingur að mennt en hefur starfað sem blaðamaður, ritstjóri og útgefandi í rúmlega aldarfjórðung. Hann hefur gefið út fimm bækur, meðal annars um viðskipti, efnahags- og dómsmál. Þá hefur Óli Björn skrifað fjölda greina í dagblöð og tímarit og hefur undanfarin ár skrifað vikulega pistla í Morgunblaðið.

„Það hefur margt tekist vel á yfirstandandi kjörtímabili og mestu skiptir að traustur grunnur hefur verið byggður undir framtíðina,“ segir Óli Björn.

„En fram undan eru mörg og mikilvæg verkefni. Ég lít á mig fyrst og fremst sem talsmann sjálfstæða atvinnurekendans og millistéttarinnar, baráttumann fyrir lágum sköttum, sanngjarnri samkeppni og jafnræði, ekki síst í lífeyrismálum.“

„Stærsta verkefni Sjálfstæðisflokksins er og verður að tryggja öllum fjárhagslegt sjálfstæði, ekki síst ungu fólki og þeim sem lokið hafa góðu dagsverki. Einmitt þess vegna verður hið opinbera að gæta hófsemdar í skattheimtu, lofa dugmiklu fólki að njóta erfiðisins, tryggja raunverulegt valfrelsi í húsnæðismálum og  leiðrétta mismunun í lífeyrisréttindum landsmanna,“ segir hann í framboðstilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert