Birta framboðslista í lok næstu viku

Frá stofnfundi Viðreisnar.
Frá stofnfundi Viðreisnar. mbl.is/Árni Sæberg

Viðreisn stefnir að því að birta framboðslista sína fyrir komandi þingkosningar í lok næstu viku. Þetta segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, í samtali við mbl.is

„Við erum að klára uppstillinguna en þurfum svo að fara með listann fyrir yfirkjörstjórn og stjórn,“ segir Birna sem segir það vera hefðbundið ferli. Spurð hvort búast megi við fleiri nafntoguðum einstaklingum á lista en þegar hafa verið nafngreindir í fjölmiðlum segir hún svo vera.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert