Á ekki von á fleiri mótframboðum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson býður sig fram til formanns Framsóknarflokksins á …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson býður sig fram til formanns Framsóknarflokksins á flokksþingi flokksins sem fram fer 1. og 2. október. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á ekki endilega von á því að honum berist fleiri mótframboð í stöðu formanns Framsóknarflokksins. Þetta kom fram í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

„Ég skal ekki segja, ég á ekki endilega von á því. Flestir þeirra sem hafa verið í forystu í flokknum hafa lýst því yfir, ýmist við mig eða opinberlega eða hvort tveggja, að þeir muni ekki bjóða sig fram gegn mér,“ sagði Sigmundur í samtali við Kristján Kristjánsson í þættinum.  

Svein­björn Eyj­ólfs­son, for­stöðumaður Nauta­stöðvar Bænda­sam­taka Íslands, hefur tilkynnt um framboð sitt til for­manns gegn Sig­mundi.

Sjá frétt mbl.is: Sveik fyrst og fremst sjálfan sig

Sig­mund­ur Davíð hlaut af­ger­andi kosn­ingu í fyrsta sæti list­a Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Kosið var um fimm efstu sæti listans á tvöföldu kjördæmisþingi flokksins í kjördæminu sem hófst í gær. Marka mátti af and­rúms­loft­inu á þing­inu að Sig­mund­ur nýt­ur gríðargóðs stuðnings í kjör­dæm­inu.

„Maður getur aldrei verið alveg rólegur í pólitík, það er rétt að vera hæfilega órólegur. En ég viðurkenni að það er afskaplega þægilegt að hafa fengið svona afgerandi stuðning. Þetta veitir manni töluverðan styrk upp á framhaldið,“ sagði Sigmundur og bætti við að niðurstaðan væri góð í ljósi þeirrar baráttu sem er að hefjast fyrir alþingiskosningar sem fara fram í lok október.  

Flokksþing Framsóknarflokksins fer fram 1. og 2. október næstkomandi. Sigmundur Davíð vonast til að flokksþingið þjappi flokksmönnum saman.

„Þegar menn takast á getur það haft einhver eftirmál, vonandi verða þau sem minnst,“ sagði Sigmundur, og vísaði í útgöngu Höskuldar Þórhallssonar af þinginu í gær eftir að ljóst varð að hann hlaut ekki kosningu í 1. sæti listans. „Þess vegna fannst mér mjög gott að upplifa að jafnvel fólk úr þessum hópi sem hefur verið í minni andstöðu er tilbúið að sætta sig við lýðræðislega niðurstöðu og vinna saman og hlakkar til kosningabaráttunnar.“

Spurður hvort Sigmundur Davíð muni leiða Framsóknarflokkinn í komandi alþingiskosningum sagði hann: „Ef flokkurinn veitir mér umboð til þess ætla ég að gera það. Ég er svo sannarlega galvaskur og hlakka til kosninganna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert