Vésteinn Valgarðsson leiðir listann

Vésteinn Valgarðsson.
Vésteinn Valgarðsson. Ljósmynd/Alþýðufylkingin

Vésteinn Valgarðsson sagnfræðingur mun leiða lista Alþýðufylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður vegna þingkosninganna í haust. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flokknum.

Vésteinn er fæddur 1980 og hefur starfað sem stuðningsfulltrúi á endurhæfingargeðdeild Landspítalans á Kleppi síðan 2001. Vésteinn er sagnfræðingur frá Háskóla Íslands. Sambýliskona hans er Gunnvör Rósa Eyvindardóttir stjórnmálafræðingur.

Vésteinn hefur lengi verið virkur í félagsstörfum og stjórnmálum að því er segir í tilkynningunni. Meðal annars í Félaginu Íslandi-Palestínu, Samtökum hernaðarandstæðinga, Vantrú og Rauðum vettvangi. Þá er hann varaformaður Alþýðufylkingarinnar.

Vésteinn ritstýrði vefritinu Eggin.is frá 2003 til 2008. Vésteinn hefur verið trúnaðarmaður SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu á Kleppsspítala síðan 2006.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert