Landsmenn fylgdust með eldhúsdagsumræðum á Alþingi á twitter. Tístendur lögðu mikið upp úr því að koma léttum bröndurum að, eins og sjá má hér að neðan.
Páll Valur Björnssin, þingmaður Bjartar framtíðar, gerði réttindi barna að umfjöllunarefni sínu og hlaut talsvert lof fyrir:
Páll Valur is alive and kicking sem er meira en margur #eldhúsdagur
— Steinunn (@steinolina) September 26, 2016
Páll Valur er gegnheilt góðmenni, einn sá besti maður sem Ísland á. Endurspeglast allt í hans vinnu. #eldhúsdagur
— Teitur Örlygsson (@teitur11) September 26, 2016
Páll Valur er bestur. Það er bara þannig. Punktur. . #eldhúsdagur
— Helga Björg Arnard (@HelgaBjrg) September 26, 2016
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði ríkisstjórn vinstri flokka vera eins og óvissuferð sem endaði illa.
Hef bara einu sinni farið í óvissuferð, hún hét "Guð blessi Ísland" #eldhúsdagur #vg #kosningar
— Lísa Kristjánsdóttir (@Lisakristjansd) September 26, 2016
Ég hef farið í margar óvissuferðir með vinstri mönnum og þær hafa ALLAR verið skemmtilegar #eldhusdagur
— Óskar Steinn (@oskasteinn) September 26, 2016
Við höfum ekki efni á óvissuferð árið 2016. Skellur fyrir marga #eldhúsdagur
— Stefán Eiríksson (@StefanEiriks) September 26, 2016
Einhverjir fóru þá skemmtilegu leið að birta fyndnar myndir:
Kalt mat: Ásmundur átti kvöldið. #eldhúsdagur pic.twitter.com/IvOgEFf4n3
— Andrés Ingi (@andresingi) September 26, 2016
Það sjá allir með opin augun að þetta er Páley lögreglustjóri í lélegu dulargervi #eldhúsdagur pic.twitter.com/8sTnbtHRx6
— Guðjón Ólafsson (@gauiolafs) September 26, 2016
Verð. Að. Halda. Mér. Vakandi. #eldhúsdagur pic.twitter.com/VnDQWicwvA
— Páll Pétursson (@pallpeturs) September 26, 2016