„Menn verða að átta sig á því að tekjuhlið ríkisfjármálanna ræðst fyrst og femst af vexti og viðgangi atvinnulífsins. Það er ætlast til þess af okkur af fólkinu sem stendur undir öllum þessum skattgreiðslum að við, á hverjum tíma, tökum ekki meira af fólki eða atvinnulífinu í skatta og gjöld en nauðsyn krefur.“
Þetta sagði Bjarni Benediksson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í ræðu sinni á flokksráðsfundi sjálfstæðismanna í Laugardalshöll á laugardag. Gagnrýndi Bjarni aðra stjórnmálaflokka fyrir kosningaloforð um aukin ríkisútgjöld.
Í Morgunblaðinu í dag segir Bjarni að megináhersla Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar verði á uppbyggingu innviða. „Það eru mikil sóknarfæri til að byggja upp landið okkar á næstu árum á öllum sviðum. En það er ekki hægt að gera allt í einu og við ætlum að forgangsraða í þágu stöðugleika og uppbyggingar innviða,“ sagði hann og vísaði m.a. til heilbrigðis- og menntamála.
Bjarni ræddi einnig hugmynd sjálfstæðismanna um að bankarnir yrðu almenningsvæddir, þ.e. að almenningur fengi drjúgan hluta bankanna í sinn hlut, samhliða skráningu bankanna á markað. Sagði hann það í samræmi við stefnu flokksins að almenningur fengi hlut í bönkunum.