Þjóðskrá Íslands hefur opnað aðgang að rafrænni kjörskrá sem þýðir að kjósendur geta með einföldum hætti kannað hvar þeir eru á kjörskrá í komandi þingkosningum.
Þegar slegin er inn kennitala á skra.is kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Yfirleitt birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild. Þetta kemur fram í frétt á vefnum kosning.is.
Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir áttu skráð lögheimili fimm vikum fyrir kjördag, 24. september síðastliðinn. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá.
Kosning utan kjörfundar hófst hjá sýslumönnum um land allt hinn 21. september síðastliðinn.