Preben og Dagný efst hjá Bjartri framtíð í NA

Prebens Pétursson og Dagný Rut Haraldsdóttir skipa efstu sæti Bjartrar …
Prebens Pétursson og Dagný Rut Haraldsdóttir skipa efstu sæti Bjartrar framtíðar í Norðausturkjördæmi.

Dagný Rut Haraldsdóttir, 32 ára gömul tveggja barna móðir, mun verma annað sætið á lista Bjartrar framtíðar í Norðausturkjördæmi. Áður hafði verið greint frá því að Preben Pétursson, mjólkurtæknifræðingur og framkvæmdastjóri, myndi leiða listann.

Dagný Rut er lögfræðingur með próf í sáttamiðlun og leigjandi á húsnæðismarkaði sem hefur reiknað það út að fjölskyldan verður u.þ.b. 17 ár að safna sér fyrir útborgun í íbúð, að því er segir í tilkynningu og að hana langi að breyta því. Listann má í heild sjá hér að neðan:

  1. Preben Pétursson, mjólkurtæknifræðingur, framkvæmdastjóri og varaþingmaður
    2. Dagný Rut Haraldsdóttir, lögfræðingur félags einstæðra foreldra
    3. Arngrímur Viðar Ásgeirsson, hótelstjóri, íþróttakennari og verkefnastjóri
    4. Haukur Logi Jóhannsson, verkefnastjóri
    5. Jónas Björgvin Sigurbergsson, nemi og íþróttamaður
    6. Margrét Kristín Helgadóttir, lögfræðingur og stjórnsýslufræðingur
    7. Áshildur Hlín Valtýsdóttir, kennari og markþjálfi
    8. Sigurjón Jónasson, flugumferðarstjóri
    9. Stefán Már Guðmundsson, kennari
    10. Kristín Björk Gunnarsdóttir, verkefnastjóri og garðyrkjufræðingur
    11. Þórður S. Björnsson, bóndi
    12. Erla Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur
    13. Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við HA
    14. Guðrún Karitas Garðarsdóttir, viðskiptafræðingur
    15. Eva Dögg Fjölnisdóttir, hárgreiðslumeistari
    16. Rakel Guðmundsdóttir, nemi
    17. Dagur Skírnir Óðinsson, félagsfræðingur
    18. Steinunn Aðalsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur
    19. Hólmgeir Þorsteinsson, varaslökkviliðsstjóri Akureyri
    20. Brynhildur Pétursdóttir, alþingismaður
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert