BF kynnir lista Norðvesturkjördæmis

G. Valdimar Valdemarsson.
G. Valdimar Valdemarsson.

Björt framtíð hefur kynnt framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi.

Fyrsta sætið skipar G. Valdimar Valdemarsson framkvæmdastjóri, sem í tilkynningu er sagður telja að fulltrúar Bjartrar framtíðar hafi náð árangri við að „nálgast verkefni og vandamál samtímans með nýjum aðferðum þar sem við greinum veikleika og styrkleika, ógnir og tækifæri og byggjum stefnumörkun á staðreyndum og rannsóknum en ekki eingöngu á pólitískri hugmyndafræði.“

Annað sæti listans skipar Kristín Sigurgeirsdóttir, skólaritari og MLM nemi, sem sögð er lýsa sér sem náttúrubarni, sem annt sé um að afkomendur „okkar allra fái að njóta náttúrunnar og umhverfisins eins og við og forverar okkar hafa gert.“

Þriðja sæti listans skipar Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir, skólaliði og handverkskona. Að því er fram kemur í tilkynningu leggur hún áherslu á menntamál. Skólar og leikskólar berjist í bökkum við að veita grunnþjónustu og hafi ekki fjárhagslegt svigrúm til að gera betur. Skoða þurfi þá tekjuskiptingu sveitarfélaga og ríkis í þessu samhengi.

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, skipar þá heiðurssæti listans.

Hér má sjá listann í heild sinni:

  1. G. Valdimar Valdemarsson, framkvæmdastjóri
  2. Kristín Sigurgeirsdóttir, skólaritari og MLM nemi
  3. Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir, skólaliði og handverkskona
  4. Matthías Freyr Matthíasson, barnaverndarstarfsmaður og laganemi
  5. Gunnsteinn Sigurðsson, umsjónarþroskaþjálfi og grunnskólakennari
  6. Gunnlaugur Ingivaldur Grétarsson, fjallaleiðsögumaður
  7. Elín Matthildur Kristinsdóttir, deildarstjóri og meistaranemi
  8. Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
  9. Haraldur Reynisson, kennari
  10. Emilía Íris Líndal Garðarsdóttir, myndlistarmaður
  11. Vilborg Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi
  12. Hafþór Óskarsson, ferðamálafræðingur
  13. Ingunn Jónasdóttir, kennari
  14. Guðmundur Björnsson, verkfræðingur og gæðastjóri
  15. Kristján Guðmundsson, myndlistarmaður
  16. Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir
Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir
Kristín Sigurgeirsdóttir.
Kristín Sigurgeirsdóttir.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert