Sjálfstæðisflokkurinn stærstur

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 21,9% fylgi í nýjustu skoðanakönnun MMR. Píratar mælast með 19,1% fylgi og Vinstri græn með 16%. 

Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,0% en mældist 9,2% í síðustu könnun sem lauk 13. október. Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,3% en mældist 10,2% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 8,8%, samanborið við 8,2% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist 7,6% en mældist 9,0% síðast. Fylgi Flokks fólksins mældist 3,4%, samanborið við 1,2% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 33,3%. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 34,1% í síðustu könnun.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 981 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 19. til 26. október 2016

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert