Funda kl. 13 á morgun

Fulltrúar flokkanna funda aftur á morgun.
Fulltrúar flokkanna funda aftur á morgun. mbl.is/Ófeigur

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, hefur boðað formenn og fulltrúa Pírata, Viðreisnar, Bjartrar framtíðar og Samfylkingarinnar á sinn fund kl. 13 á morgun.

Fulltrúar flokkanna funduðu í dag og voru almennt nokkuð bjartsýnir að fundinum loknum.

„Þetta var góður fund­ur; við fór­um vítt og breitt sem ger­ir mann bjart­sýn­an á framtíðina. Við vor­um að fara í ákveðna hringi og velta fyr­ir okk­ur til dæm­is heil­brigðismál­un­um og það var samstaða um að þar þyrfti að gera bet­ur en erum ekki kom­in í ná­kvæma hluti,“ sagði Ótt­arr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert