Samþykkja formlegar viðræður

Mynd frá fundarhöldum flokkanna fimm í gær.
Mynd frá fundarhöldum flokkanna fimm í gær. mbl.is/Ófeigur

Vinstri-græn, Björt framtíð, Píratar, Samfylkingin og Viðreisn ætla að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður. Þetta staðfestir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri-grænna. 

„Það eru allir til í að fara í formlegar viðræður. Við munum mynda málefnahópa sem vinna næstu daga og þá skýrist hvort að það sé grundvöllur fyrir ríkisstjórnarssamstarfi,“ sagði Katrín í samtali við mbl.is.  Hún ætlar að hafa samband við Guðna Th. Jóhannesson forseta í dag til að gera honum grein fyrir stöðu mála. 

Frétt mbl.is: Funda um framhaldið

Flokkarnir fimm hafa fundað í dag og í gær til að taka afstöðu til þess hvort hefja eigi form­leg­ar stjórn­ar­mynd­un­ar­viðræður. Að sameiginlegum fundi loknum í dag samþykktu þingflokkar flokkanna fimm að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður.

Í tilkynningu sem Vinstri græn sendu frá sér kemur fram að málefnahópar flokkanna muni á næstu dögum vinna að því að fara yfir málefnagrundvöll hugsanlegs stjórnarsamstarfs þessara flokka. Sú vinna hefjist á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert