Þreifingar, þukl og línurnar að skýrast

Bragi Valdimar Skúlason.
Bragi Valdimar Skúlason. mbl.is/Árni Sæberg

„Allir halda spilunum þétt að sér.“ Þessi stjórnmálafrasi er einn þeirra sem hefur verið óspart notaður eftir alþingiskosningarnar þegar flokkarnir sjö sem kosnir voru á Alþingi reyna að mynda ríkisstjórn. Hvað leynist í frasabók stjórnmálamannsins?

Baggalúturinn Bragi Valdimar Skúlason hefur mikinn áhuga á orðbragði og ræddi við blaðamann mbl.is um nokkra af þeim skemmtilegu frösum sem stjórnmálafólkið bunar út úr sér þessa dagana.

Línurnar

„Það er alltaf verið að freista einhvers; freista þess að mynda ýmislegt. Síðan er alltaf verið að bíða eftir línunum, að þær verði skýrari eða að línurnar fari að skýrast. Það kemur hvergi fram hvaða línur það eru og ég veit ekki hvort það er sjónvarpið uppi í Alþingi eða hvað,“ sagði Bragi í samtali við mbl.is.

Ég get svo sem sagt að í þeim sam­töl­um sem ég hef átt við for­menn annarra flokka þá hafa lín­urn­ar smám sam­an verið að skýr­ast,“ sagði Bjarni Benediktsson fyrir þingflokksfund Sjálfstæðisflokksins 9. nóvember.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Golli

Þreifingar og þukl

„Það eru allir að þreifa á hvor öðrum. Það er svolítið nýtt held ég, þreifingar innan flokkanna og svo er mikið verið að þreifa á formönnunum. Ég veit ekki alveg hvernig það fer fram. Einhvers konar þukl,“ sagði Bragi.

„Ég hef ekk­ert heyrt í hvorki Bene­dikt né Ótt­ari,“ sagði Birgitta Jóns­dótt­ir, þingmaður Pírata, í sam­tali við mbl.is, einnig 9. nóvember, spurð um mögu­leg­ar þreif­ing­ar vegna stjórn­ar­mynd­un­ar.

Sólgleraugu uppi á borðinu

Töluvert er fjallað um að eitthvað sé uppi á borðinu. Bragi telur að líklega sé átt við borðið þar sem þau sitja og spjalla saman. „Það er reyndar aldrei neitt uppi á borðinu þegar maður sér myndir af þeim. Það er spurning hvort eitthvað kemst upp á þetta blessaða borð. Þau segja oft að eitthvað sé uppi á borðinu sem er augljóslega lygi. Ég sá reyndar sólgleraugun hennar Katrínar uppi á borðinu en annars hef ég ekki séð neitt þar.

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG. Það er spurning hvort línurnar skýrist …
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG. Það er spurning hvort línurnar skýrist um helgina. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við mynd­um bara sjá þær og mæta að borðinu. Mér heyr­ist nú að for­send­urn­ar séu kannski að breyt­ast frá ein­um degi til næsta, kannski eft­ir því sem mögu­leik­un­um fækk­ar á borðinu. Þá verða til nýir,“ sagði Bene­dikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, á þriðjudag eftir að slitnaði upp úr viðræðum Viðreisnar, Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks.

Fáum við að sjá spilin?

Einhverjir gætu haldið að stjórnmálafólkið væri að spila póker, sem stjórnarmyndunarviðræðurnar eru að vissu leyti. Þau halda í það minnsta spilunum þétt að sér. „Spilin sjást heldur ekki. Það er spurning hvort þessar línur séu eitthvað að skýrast á þessum spilum,“ sagði Bragi

„Fólk er að tala sam­an og all­ir halda spil­un­um þétt að sér. Svo eru alls kon­ar hug­mynd­ir fram og til baka,“ sagði Lilja Dögg Al­freðsdótt­ir, ut­an­rík­is­ráðherra og vara­formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í samtali við mbl.is 7. nóvember.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir hefur haldið spilunum þétt að sér.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir hefur haldið spilunum þétt að sér. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óyfirstíganlegur ágreiningur er gamall og góður frasi. Lítið virðist hafa heyrst af honum en Bragi hefur sínar skýringar á því. „Það er ekki mikið um hann, þannig að þau virðast geta stigið yfir ágreininginn. Þetta er einhvers konar tarsan-leikur í Alþingishúsinu.

Þarf að útbúa stjórnarmyndundartösku

Að lokum telur Bragi að það mætti gera stjórnarmyndunarumboðið að einhverjum ákveðnum hlut. Eitthvað áþreifanlegt sem fólk væri að rétta sín á milli: 

Það mætti vera einhver taska, stjórnarmyndunarkit. Þar væri umboðið; gullkefli sem þau væru að rétta á milli. Þar væri fullt af skýrum línum og einhverjir hanskar til að þreifa og spilastokkur. Ég held að þetta myndi ganga betur ef þetta væri skýrara. Það verður að útbúa stjórnarmyndunartösku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert