Langflestir vilja aftur inn á Alþingi

Þingmenn hlusta á stefnuræðu forsætisráðherra fáeinum dögum áður en boðað …
Þingmenn hlusta á stefnuræðu forsætisráðherra fáeinum dögum áður en boðað var til nýrra þingkosninga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Yfirgnæfandi meirihluti þeirra, sem nú sitja á þingi, gefur kost á sér til endurkjörs í alþingiskosningum 28. október næstkomandi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Blaðið setti sig í samband við sitjandi alþingismenn í gær og kannaði hver staðan væri í þeirra ranni. Rauði þráðurinn í svörunum var sá að þar sem aðeins eitt ár væri liðið frá síðustu kosningum væri sjálfsagt að halda áfram.

Þeir sem kjörnir voru á síðasta ári sögðust sumir rétt vera búnir að læra á starfshefðir og vinnubrögð á Alþingi. Þeir vildu jafnframt vinna áfram að brautargengi ýmissa mála sem þeir settu á oddinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert