Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei óttast kjósendur

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég get ekki svarað fyrir þá ákvörðun föður míns að veita einstaklingi umsögn þegar hann sótti um uppreist æru. Undirskrift hans var hluti af úreltu og meingölluðu ferli sem núverandi dómsmálaráðherra hafði þegar í maí hafið vinnu við að afnema. Sú vinna hófst áður en málin komust í hámæli en brotaþolar og aðstandendur þeirra eiga heiður skilið fyrir að knýja fast á um breytingar.“

Þetta segir Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í bréfi sem hann hefur sent til sjálfstæðismanna. Bjarni segir að atburðarrásin síðustu daga hafi verið hröð og að hann geti vel játað að hún hafi komið honum á óvart. Fyrst og fremst hafi hún þó valdið honum vonbrigðum. 

„Viðbrögð samstarfsflokka okkar við meintum trúnaðarbresti, sem var að vísu enginn í huga annars flokksformannsins og tók nokkra daga að verða til í huga hins, voru fráleit og ábyrgðarlaus gagnvart fólkinu í landinu. Samstarfinu var slitið án þess að minnsta viðleitni væri gerð til að eiga samtal um það mál sem deilt var um.“

Fjölgun smáflokka ávísun á glundroða

Bjarni segir Sjálfstæðisflokkurinn ekki hlaupast undan ábyrgð. „Við munum stýra starfsstjórn fram til kosninga hinn 28. október, en þá leggja kjósendur dóm á störf okkar og stefnu. Í dag eru einungis 36 dagar til kosninga. Við eigum mikið verk fyrir höndum á stuttum tíma. Það er mikilvægt fyrir Íslendinga að fá aftur traust og festu í stjórnmálin í landinu.“

Skoðanakannanir bendi til þess að líkur séu á að smáflokkum fari enn fjölgandi á þingi með „tilheyrandi glundroða“ segir Bjarni ennfremur. „Við slíkar aðstæður er sterk staða Sjálfstæðisflokksins enn þýðingarmeiri en ella. Við munum ótrauð sækja fram, styrkja stöðu okkar og verða áfram kjölfestan í íslenskri pólitík.“

Hins vegar muni Sjálfstæðisflokkurinn varla sigla lygnan sjó fram að kosningum. „Framundan er snörp kosningabarátta. Hún verður vafalaust óvægin á köflum en Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei óttast kjósendur. Við erum ævinlega tilbúin til kosninga og hlökkum til að fara um landið, eiga samtal við landsmenn og kynna stefnumál okkar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert