Sósíalistaflokkurinn býður ekki fram

Gunnar Smári Egilsson.
Gunnar Smári Egilsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sósíalistaflokkur Íslands mun ekki bjóða fram lista í komandi alþingiskosningum. Þetta var niðurstaða félagafundar flokksins sem greint er frá í tilkynningu frá Gunnari Smára Egilssyni, stofnanda flokksins.

„Sósíalistaflokkurinn varð til 1. maí síðastliðinn. Félagar flokksins samþykktu að fyrstu verkefni hans yrðu að byggja upp lýðræðislegt innra starf, útfæra grunnstefnu flokksins og blása til Sósíalistaþings í haust. Þessu starfi miðar vel og hreyfing er að verða til. En því er ekki lokið. Af þeim sökum ætlar Sósíalistaflokkurinn ekki að bjóða fram í komandi þingkosningum. Þess í stað mun flokkurinn halda áfram að vinna að uppbyggingu fjöldahreyfingar sem í framtíðinni mun beita sér innan verkalýðshreyfingarinnar, í sveitastjórnum og á þingi,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert