Listinn tilbúinn á laugardaginn

Brynjar Níelsson verður færður upp í efsta sæti á lista …
Brynjar Níelsson verður færður upp í efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Ekki verður kosið um nein sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík heldur verður farið í uppstillingu á lista eftir röðun. Þetta var ákveðið á fulltrúarráðsfundi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í gær þar sem jafnframt var kosið í kjörnefnd.

Uppstillingin á listunum verður sú sama og fyrir þingkosningar í fyrra að því undanskildu að allir færast upp um eitt sæti í Reykjavík suður vegna fráfalls leiðtogans, Ólafar Nordal, sem lést fyrr á þessu ári. Brynjar Níelsson mun því taka efsta sætið.

„Við fórum þessa leið því þar eru stystu tímafrestirnir til þess að vera tilbúin með lista á laugardaginn,“ segir Gísli Kr. Björnsson, formaður Varðar – fulltrúaráðs í Reykjavík. 

Eins og fyrr segir leggur kjörnefndin fram listann á laugardaginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert