Helga Vala og Ágúst Ólafur leiða í Reykjavík

Ágúst Ólafur Ágústsson, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, Logi Einarsson, Páll Valur …
Ágúst Ólafur Ágústsson, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, Logi Einarsson, Páll Valur Björnsson og Helga Vala Helgadóttir. mbl.is/Eggert

Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður, og Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og leikkona, munu leiða lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur í komandi alþingiskosningum. Framboðslistar flokksins voru samþykktir á fundi á Reykjavík Natura í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samfylkingunni.

Helga Vala leiðir listann í Reykjavík norður en í 2. sæti á eftir henni situr Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar. Sat hann á þingi frá árinu 2013 til 2016 fyrir flokkinn.

Ágúst Ólafur leiðir í Reykjavík suður og á eftir honum kemur Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri við Háskólann í Reykjavík. Ágúst Ólafur er fyrrverandi alþingismaður og varaformaður Samfylkingarinnar. Ágúst hefur upp á síðkastið verið aðjunkt við Háskóla Íslands. Hann er fyrrverandi efnahagsráðgjafi forsætisráðherra, sat í bankaráði Seðlabanka Íslands og vann um tíma hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Ágúst Ólafur hefur hlotið viðurkenningu Barnaheilla fyrir að vinna sérstök störf í þágu barna og hafa með störfum sínum bætt réttindi og stöðu barna. Ágúst er lögfræðingur og hagfræðingur að mennt.

Helga Vala Helgadóttir og Ágúst Ólafur Ágústsson.
Helga Vala Helgadóttir og Ágúst Ólafur Ágústsson. Ljósmynd/Samfylkingin

Helga Vala Helgadóttir er héraðsdómslögmaður og leikkona auk þess sem hún er umboðsmaður rokkhljómsveitarinnar Mammút. Helga Vala starfaði um árabil á fjölmiðlum þar sem hún sinnti dagskrárgerð af ýmsum toga áður en hún sneri sér að fullu að lögmennsku en hún er eigandi Völvu lögmanna. Í lögmannsstörfum sínum hefur Helga Vala meðal annars sinnt réttargæslu fyrir brotaþola kynferðisbrota, sinnt mannréttindamálum og málefnum útlendinga, barna- og fjölskyldurétti auk annars.Síðustu ár hefur Helga Vala sinnt fjölmörgum trúnaðarstörfum, meðal annars setið í stjórn Félags íslenskra leikara, í Þjóðleikhúsráði og Höfundarréttarráði. Árin 2009-2010 var Helga Vala formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík.

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir.
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Samfylkingin

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri Tengsla hjá Háskólanum í Reykjavík en þar hefur hún starfað síðastliðin sex ár. Þar áður starfaði Jóhanna Vigdís sem framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík, sem markaðsstjóri Borgarleikhússins og sem forstöðumaður markaðsmála Straums-Burðaráss fjárfestingabanka. Jóhanna Vigdís er menntuð í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands, með MSc-gráðu í menningarfræði frá Edinborgarháskóla og MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Í störfum sínum undanfarin ár hjá Háskólanum í Reykjavík hefur Jóhanna Vigdís lagt höfuðáherslu á uppbyggingu alþjóðlegs samstarfs og verkefni sem snúa að því að auka veg stúlkna og kvenna í tæknigreinum.

Páll Valur Björnsson er í öðru sæti í Reykjavík norður …
Páll Valur Björnsson er í öðru sæti í Reykjavík norður fyrir Samfylkinguna. Ljósmynd/Samfylkingin

Páll Valur Björnsson er fyrrverandi alþingismaður og sat áður í bæjarstjórn Grindavíkur. Páll Valur er menntaður grunnskólakennari og starfar nú sem kennari við Fiskvinnsluskólann í Grindavík en hefur áður meðal annars sinnt kennslu í Grunnskóla Grindavíkur og Njarðvíkurskóla. Páll Valur lagði í þingstörfum sínum mikla áherslu á mannréttindi, velferðarmál og ekki síst á málefni barna. Páli Vali voru á síðasta ári veitt Barnaréttindaverðlaun ungmennaráðs UNICEF á Íslandi, Barnaheilla og ráðgjafarhóps umboðsmanns barna fyrir óþreytandi baráttu sína fyrir hagsmuni barna, ekki síst þeirra sem höllum fæti standa í samfélaginu. 

Listarnir í heild:

Reykjavík suður:

  1. Ágúst Ólafur Ágústsson háskólakennari
  2. Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri
  3. Einar Kárason rithöfundur
  4. Ellert B. Schram formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og fyrrv. alþingismaður
  5. Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar
  6. Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri SFR stéttarfélags og leikstjóri
  7. Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir vefsmiður, kaos-pilot og athafnastjóri Siðmenntar
  8. Guðmundur Gunnarsson fyrrv. formaður Rafiðnaðarsambands Íslands
  9. Margrét M. Norðdahl myndlistarkona
  10. Reynir Sigurbjörnsson rafvirki
  11. Sigríður Arndís Jóhannsdóttir verkefnastjóri þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða
  12. Tómas Guðjónsson stjórnmálafræðinemi
  13. Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir laganemi
  14. Hlal Jarah veitingamaður á Mandi
  15. Ragnheiður Sigurjónsdóttir uppeldisfræðingur
  16. Reynir Vilhjálmsson eðlisfræðingur og framhaldsskólakennari
  17. Halla B. Thorkelsson fyrrverandi formaður Heyrnarhjálpar
  18. Ída Finnbogadóttir mannfræðingur og varaformaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík
  19. Sigurður Svavarsson bókaútgefandi
  20. Signý Sigurðardóttir viðskiptafræðingur
  21. Björgvin Guðmundsson viðskiptafræðingur og fyrrv. borgarfulltrúi
  22. Jóhanna Sigurðardóttir fyrrv. forsætisráðherra

Reykjavík norður:

  1. Helga Vala Helgadóttir lögmaður og leikkona
  2. Páll Valur Björnsson grunnskólakennari
  3. Eva Baldursdóttir lögfræðingur
  4. Þórarinn Snorri Sigurgeirsson sagnfræðingur og formaður Ungra jafnaðarmanna
  5. Nikólína Hildur Sveinsdóttir mannfræðinemi
  6. Þröstur Ólafsson hagfræðingur
  7. Sigríður Ásta Eyþórsdóttir (Sassa) iðjuþjálfi í Hagaskóla
  8. Hallgrímur Helgason rithöfundur og myndlistarmaður
  9. Anna Margrét Ólafsdóttir leikskólastjóri
  10. Óli Jón Jónsson kynningar- og fræðslufulltrúi BHH
  11. Edda Björgvinsdóttir leikkona og menningarstjórnandi
  12. Birgir Þórarinsson (Biggi veira) tónlistarmaður í GusGus og DJ
  13. Jana Thuy Helgadóttir túlkur
  14. Leifur Björnsson rútubílstjóri og leiðsögumaður
  15. Vanda Sigurgeirsdóttir uppeldis- og menntunarfræðingur
  16. Hervar Gunnarsson vélstjóri
  17. Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari
  18. Þorkell Heiðarsson líffræðingur og tónlistarmaður
  19. Ingibjörg Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur
  20. Gunnar Lárus Hjálmarsson (Dr. Gunni) tónlistarmaður
  21. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur og fyrrv. þingkona
  22. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert