Steingrímur skipar efsta sætið

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon. mbl.is/Eggert

Framboðslisti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi var samþykktur einróma á aukafundi kjördæmisráðs sem fram fór á Akureyri í kvöld.

Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður og fyrrverandi formaður flokksins, skipar efsta sæti listans og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir alþingismaður annað sætið.

Ingibjörg Þórðardóttir framhaldsskólakennari er í þriðja sætinu og nýkjörinn varaformaður VG, Edward Huijbens, er í því fjórða.

Framboðslistinn í heild er svohljóðandi:

1. Steingrímur Jóhann Sigfússon, alþingismaður, Gunnarsstöðum.

2. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, alþingismaður, Ólafsfirði.

3. Ingibjörg Þórðardóttir, framhaldsskólakennari, Neskaupstað.

4. Edward H. Huijbens, varaformaður Vinstri grænna, prófessor, Akureyri.

5. Óli Halldórsson, forstöðumaður og sveitarstjórnarfulltrúi, Húsavík.

6. Berglind Häsler, bóndi og matvælaframleiðandi, Djúpavogshreppi.

7. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, Akureyri.

8. Sindri Geir Óskarsson, guðfræðingur, Dæli.

9. Þuríður Skarphéðinsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Egilsstöðum.

10. Hjördís Helga Seljan, grunnskólakennari, Reyðarfirði.

11. Aðalbjörn Jóhannsson, nemi, Húsavík.

12. Helgi Hlynur Ásgrímsson, sjómaður, Borgarfirði eystri.

13. Jóna Björg Hlöðversdóttir, bóndi og varaformaður Ungra bænda, Björgum.

14. Tryggvi Kristbjörn Guðmundsson, smiður, Dalvík.

15. Sif Jóhannesdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga og sveitarstjórnarfulltrúi, Húsavík.

16. Björn Halldórsson, bóndi, Akri, Vopnafirði.

17. Þórunn Hrund Óladóttir, kennari, Seyðisfirði.

18. Hrafnkell Freyr Lárusson, doktorsnemi, Breiðdalsvík.

19. Þorsteinn V. Gunnarsson, sérfræðingur hjá Rannís og fyrrv. rektor, Akureyri.

20. Kristín Sigfúsdóttir, fyrrv. framhaldsskólakennari og bæjarfulltrúi, Akureyri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert