Flest eru framboðin 11 en fæst 9

9 til 11 flokkar munu bjóða fram til Alþingis í …
9 til 11 flokkar munu bjóða fram til Alþingis í 6 kjördæmum. Morgunblaðið/Ómar

Frestur til að skila inn framboðslistum fyrir Alþingiskosningar þann 28. október næstkomandi rann út klukkan 12 á hádegi í dag. Yfirkjörstjórnir í öllum kjördæmum eru nú komnar með listana í hendur. Fæst eru framboðin níu, í Norðausturkjördæmi, en flest eru þau ellefu í fjórum kjördæmum.

Þeir flokkar sem eiga sæti á Alþingi bjóða fram í öllum kjördæmum ásamt Miðflokknum og Flokki fólksins. Alþýðufylkingin og Íslenska þjóðfylkingin bjóða fram í fjórum kjördæmum, en Dögun býður aðeins fram í Suðurkjördæmi. Í fyrstu útgáfu fréttarinnar vantaði Miðflokkinn á lista flokkana í Suðurkjördæmi, en það hefur verið leiðrétt.

Á morgun fundar svo yfirkjörstjórn og fer yfir hvort einhverjir gallar eru á framboðunum. Finnist gallar er umboðsmönnum lista gefinn kostur á að leiðrétta þá og má veita frest í því skyni. Ef gallar sem yfirkjörstjórn hefur bent á eru ekki leiðréttir innan tilsetts frests kveður hún upp úrskurð um hvort listi skuli fyrir það teljast ógildur. Hér fyrir neðan má sjá framboðin sem skiluðu inn listum til yfirkjörstjórnar fyrir klukkan 12 í dag.

Norðvesturkjördæmi:

  • Björt framtíð
  • Píratar
  • Samfylkingin
  • Sjálfstæðisflokkur
  • Framsóknarflokkur
  • Miðflokkur
  • Flokkur fólksins
  • Vinstri græn
  • Viðreisn

 Norðausturkjördæmi:

  • Björt framtíð
  • Píratar
  • Samfylkingin
  • Sjálfstæðisflokkur
  • Framsóknarflokkur
  • Miðflokkur
  • Flokkur fólksins
  • Alþýðufylkingin
  • Vinstri græn
  • Viðreisn 

Suðurkjördæmi:

  • Björt framtíð
  • Miðflokkurinn
  • Píratar
  • Samfylkingin
  • Sjálfstæðisflokkur
  • Framsóknarflokkur
  • Flokkur fólksins
  • Vinstri græn
  • Viðreisn
  • Íslenska þjóðfylkingin
  • Dögun

 Suðvesturkjördæmi:

  • Björt framtíð
  • Píratar
  • Samfylkingin
  • Sjálfstæðisflokkur
  • Framsóknarflokkur
  • Miðflokkur
  • Flokkur fólksins
  • Alþýðufylkingin
  • Íslenska þjóðfylkingin
  • Vinstri græn
  • Viðreisn

Reykjavíkurkjördæmi norður:

  • Björt framtíð
  • Píratar
  • Samfylkingin
  • Sjálfstæðisflokkur
  • Framsóknarflokkur
  • Miðflokkur
  • Flokkur fólksins
  • Alþýðufylkingin
  • Vinstri græn
  • Viðreisn
  • Íslenska þjóðfylkingin

Reykjavíkurkjördæmi suður:

  • Björt framtíð
  • Pírat­ar
  • Sam­fylk­ing­in
  • Sjálf­stæðis­flokk­ur
  • Fram­sókn­ar­flokk­ur
  • Miðflokk­ur
  • Flokk­ur fólks­ins
  • Alþýðufylk­ing­in
  • Vinstri græn
  • Viðreisn
  • Íslenska þjóðfylk­ing­in
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert