Bjarni sestur inn til Guðna

Bjarni Benediktsson og Guðni Th. Jóhannesson á Bessastöðum.
Bjarni Benediktsson og Guðni Th. Jóhannesson á Bessastöðum. mbl.is/Hari

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er mættur til fundar við Guðna Th. Jóhannesson forseta á Bessastöðum. Í dag ætlar forsetinn að ræða við formenn allra flokka sem eiga fulltrúa á Alþingi eftir þingkosningarnar helgarinnar.

Bjarni var fámáll þegar hann steig út úr bílnum og gaf ekki færi á að ræða við fjölmiðla. „Ekki neitt“ sagði hann, spurður hvað hann vildi segja fyrir fundinn. Bjarni er nú sestur inn til Guðna.

Næst í röðinni er Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, en forsetinn fundar með formönnunum í röð sem ákvarðast af þingstyrk flokkanna.

Bjarni Benediktsson við komuna á Bessastaði.
Bjarni Benediktsson við komuna á Bessastaði. mbl.is/Hari
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert