Fundi formanna er lokið

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fundi formanna flokkanna fjögurra sem eru í stjórnarmyndunarviðræðum er lokið. Flokkarnir ætla að halda áfram viðræðum sínum í fyrramálið.

Fundurinn fór fram á skrifstofu Vinstri grænna. 

Fyrr í dag voru þingflokksfundir haldnir þar sem þingflokkarnir voru upplýstir um stöðuna.

Á morgun kemur væntanlega í ljós hvort stjórnarmyndunarviðræðurnar halda áfram.

Ekki náðist í formenn flokkanna við vinnslu fréttarinnar, en samkvæmt upplýsingum mbl.is er vilji fyrir áframhaldandi viðræðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert