Augljóst að bjóða fleirum að borðinu

Sigurður Ingi Jóhannsson, Þórhildur Sunnar Ævarsdóttir, Logi Einarsson og Katrín …
Sigurður Ingi Jóhannsson, Þórhildur Sunnar Ævarsdóttir, Logi Einarsson og Katrín Jakobsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þingflokkur Pírata telur ekki fullreynt að ná jákvæðri niðurstöðu í stjórnarmyndunarviðræðum. Samtalið hafi gengið vel og telja Píratar alla hafa komið að borðinu með það að markmiði að ganga í þau stóru mál sem bíða.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Pírötum en Framsóknarflokkurinn sleit stjórnarmyndunarviðræðum Pírata, Framsóknarflokks, Samfylkingar og Vinstri-grænna í hádeginu.

Píratar skilja áhyggjur af naumum meirihluta og telja hina augljósu leið að bjóða fleirum að borðinu. Milli flokkanna fjögurra ríkir mikið og gott traust.

„Þolinmæði almennings fyrir stjórnmálum spillingar, eiginhagsmuna og sjálfhverfu er á þrotum. Það er von Pírata að aðrir stjórnmálaleiðtogar hafi heyrt þau skilaboð og gangi ekki til stjórnarviðræðna þar sem slík stjórnmál fá áfram að viðgangast,“ segir í tilkynningunni og að þingflokkur Pírata hafi í viðræðunum haft það að markmiði að skila stjórnarsáttmála sem sé almenningi til heilla.

„Þær samningaviðræður sem fram fóru voru ánægjulegar og jákvæðar miðað við áherslur Pírata í nýafstöðnum kosningum. Mál sem ágreiningur hefur verið um hafa verið rædd í sátt,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Að endingu benda Píratar á að þeir séu flokkur málefnalegra vinnubragða og kerfisumbóta. „Við erum hreyfing sem hefur það að markmiði að stunda ábyrg stjórnmál til ávinnings fyrir almenning og til raunverulegra umbóta. Niðurstaða kosninga skilaði engum augljósum meirihluta. Píratar lýsa sig tilbúna til að leita að breiðari samstöðu og halda samtalinu áfram. Píratar skilja að verkefnið er stærra en við sjálf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert