Hinn kosturinn „ríkisstjórn samfélagslegra átaka“

Björn Valur Gíslason, fyrrverandi varaformaður VG.
Björn Valur Gíslason, fyrrverandi varaformaður VG. mbl.is/Eggert

„Fyrir utan Samfylkinguna og Vinstri græn eru allir hinir flokkarnir félagslega veikir. Þeir hafa ekki yfir að ráða félagslegu neti flokks- eða stuðningsmanna um landið og bakland þeirra er afar veikt. Sumir þeirra eru lítið annað en hylkið utan um forystufólkið sem gerir þá afar brothætta í samstarfi,“ segir Björn Valur Gíslason, fyrrverandi varaformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, á vefsíðu sinni í dag.

Tilefni skrifanna er fundur forystumanna Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata í morgun og ummæli þeirra í kjölfar hans um að þeir vildu bjóða Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG, valkost við yfirstandandi óformlegar viðræður flokks hennar við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn. Björn bendir á að fleiri flokka þyrfti til að geta myndað ríkisstjórn þessara flokka. Það yrði að vera Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn.

Frétt mbl.is: Þrír flokkar stilltu saman strengi

„Hvort sem heldur yrði þá þyrfti ríkisstjórn þessara 5-6 flokka að efna til átaka um mörg umdeild mál í samfélaginu sem þeir eru þó ekki allir sammála um. Þessir flokkar hafa hver um sig talað fyrir margvíslegum kerfisbreytingum sem hefur umfram annað aðskilið þá hverja frá öðrum. Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að allir flokkarnir gefi eftir öll helstu stefnumál sín,“ segir Björn Valur og bætir síðan við:

„Þannig þyrfti ríkisstjórn þeirra að ráðast í breytingar á landbúnaðar- og sjávarútvegskerfinu, peningakerfinu, stjórnarskrá, gjaldmiðlamálum og fleiru slíku. Þetta yrði því eðli málsins vegna ríkisstjórn samfélagslegra átaka. Ég er ekki sannfærður um að það sé það sem fólk vilji endilega núna auk þess sem efast má um pólitíska styrkleika a.m.k. sumra þessara flokka til að knýja umdeild mál í gegnum þingið.“

Frétt mbl.is: Myndi skapa pólitískan stöðugleika

Björn Valur minnir á að lokum að samstarf við þessa flokka hafi verið fyrsti kostur Katrínar. Viðræður við þá hafi verið reyndar en það hafi ekki gengið upp. „Það eru því aðrir en hún sem þarf að sannfæra um ágæti þessara hugmynda auk þess sem það vantar fleiri flokka í samstarfið. Niðurstaða þeirra þriggja í morgun virðist því hafa verið á misskilningi byggð og hugmyndir þeirra að auki óraunhæfar sem stendur.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert