„Mér finnst þið sýna hressandi kjark“

Katrín Júlíusdóttir segist vona að Vinstri græn hristi upp í …
Katrín Júlíusdóttir segist vona að Vinstri græn hristi upp í hlutunum. Árni Sæberg

Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi varaformaður Samfylkingarinnar, segir Vinstri græn sýna hressandi kjark með því að fara í stjórnarmyndunarviðræður með Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum. „Mér finnst þið sýna hressandi kjark sem vonandi hristir upp í þessu,“ skrifaði Katrín við færslu á Facebook-síðu Svandísar Svavarsdóttur, þingflokksformanns Vinstri grænna, fyrr í dag, en í færslunni hún lofaði Katrínu, formann sinn, í hástert. Hún væri bæði málefnaleg og sannfærandi.

Katrín Jakobsdóttir var gestur í þættinum Vikulokin á Rás 1 í morgun þar sem hún sagðist vera vel meðvituð um að það væri áhætta fyrir flokkinn að fara í stjórnarsamstarf með Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki.

„Ég veit að þetta stjórn­ar­sam­starf get­ur komið niður á okk­ar fylgi. Það er held­ur ekki vin­sælt að vera í rík­is­stjórn,“ sagði Katrín og minnti á að rík­is­stjórn­ar­sam­starf VG og Sam­fylk­ing­ar­inn­ar hefði einnig komið niður á fylgi flokks­ins og flokk­ur­inn þá verið við það að detta út af þingi. „Þannig að ég átta mig al­veg á að þetta er mik­il áhætta fyr­ir okk­ur og okk­ar innra starf og fé­laga.“  

Katrín kvaðst hins veg­ar telja að þegar komi að því að horfa á hlut­verk stjórn­mál­anna þá sé mik­il­væg­ara að gera ákveðnar mála­miðlan­ir til að ná ár­angri í sam­tím­an­um, frek­ar en að neita að gera mála­miðlan­ir í von um meiri ár­ang­ur seinna.

Katrín Júlíusdóttir segir nöfnu sína hafa hitt nokkra nagla í þættinum. „Enginn af þeim 8 flokkum sem kjörnir voru til þings fengu lykilinn að hjarta þjóðarinnar. Þá þarf að leggja mat á stöðuna; ætla öfl frá vinstri að miðju alltaf að kasta inn handklæðinu eftir allar kosningar sem þau fá ekki skýran meirihluta [í] og láta hinum þetta allt eftir og bíða eftir næstu kosningum eða ætla þau að reyna að þoka málum sínum áfram?“ skrifaði hún jafnframt við færslu Svandísar.

Samkvæmt nýrri könnun MMR um fylgi stjórnmálaflokka hefur stuðningur við Vinstri græn dalað um 3,6 prósentustig frá kosningum. Á sama tíma hefur fylgi Samfylkingarinnar aukist. Þá sögðust aðeins 60 prósent þeirra sem kusu Vinstri græn myndu kjósa flokkinn aftur ef kosið yrði í dag. Samkvæmt könnuninni sögðust 15 prósent þeirra sem kusu Vinstri græn ætla að kjósa Samfylkinguna nú.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert