Stokkar greiði fyrir umferð á Miklubrautinni

Hugmynd Sjálfstæðsflokksins um stokka til að greiða fyrir umferð um …
Hugmynd Sjálfstæðsflokksins um stokka til að greiða fyrir umferð um Miklubraut. mbl.is

Eyþór Arnalds, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, segir opna stokka á Miklubraut munu greiða fyrir umferð og draga úr mengun. Flokkurinn hefur skoðað tillögu að slíkum mannvirkjum. Eyþór segir margt ávinnast með þeim.

Þannig verði ekki lengur ljósastýring á nokkrum fjölförnum og hættulegum gatnamótum. Á hann þar við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, Háaleitisbrautar og Grensásvegar og gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar.

Eyþór segir útfærsluna kalla á minna landrými, kosta minna og hafa betri ásýnd. Með stuttum göngum og stokkum megi meðal annars nýta landhallann við gatnamótin við Háaleitisbraut og Grensásveg, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert