Meirihlutaviðræðurnar halda áfram

Það var glatt á hjalla þegar fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Viðreisnar …
Það var glatt á hjalla þegar fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Viðreisnar og VG komu í FB í morgun. mbl.is/Eggert

Meirihlutaviðræður Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og VG halda áfram í dag en fulltrúar flokkanna sitja á fundi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Fyrsti formlegi fundurinn var haldinn í gær.

Markmið flokkanna er að klára viðræður fyr­ir 19. júní, en þá kem­ur ný borg­ar­stjórn sam­an. Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, sagði við mbl.is í gær að viðræður gangi mjög vel.

Byrjað verður að fara kerf­is­bundið yfir mála­flokk­ana í dag en fólk úr öllum flokkum hefur sagt að vanda verði til verka í viðræðunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert